What is Toluu?
Toluu is a free service for sharing the feeds you read and discovering new ones.
Get Invite

Þorvaldur Pálmason

Um fjarkennslu og upplýsingatækni í námi og kennslu


Rafrænar ferilmöppurSeptember 4 2007
Ég flutti stuttan fyrirlestur í Kennaraháskóla Íslands í dag um rafrænar ferilmöppur. Þessi kynning var ætluð nemendum á kennsluréttindabraut sem eru að útskrifast nú um áramót. Meðal námskeiða á lokaönn er samfélag nemendahópa ásamt leiðsögumanni um gerð ferilmöppu sem á að innihalda starfskenningu nemandans.
ÁlitaefniAugust 16 2007
Ég er þessa dagana að kenna í KHÍ, ásamt öðru góðu fólki, á námskeiði í fjarkennslu og hef auk þess umsjón með þvi. Námskeiðið er einkum ætlað þeim sem litla reynslu hafa af fjarkennslu og er dagskráin með blöndu af kennslutæknilegu og kennslufræðilegu efni. Um er að ræða hefðbundið staðbundið kennsluform en til stuðnings er svo boðið upp á námssamfélag í Blackboard sem opið verður út kennslumisserið. Er þetta hugsað sem stuðningur við þessa kennara, efnisveita, m.a. með upptökum af því sem fram fer í tölvuverinu fyrir þá sem ekki sjá sér fært að mæta og aðra þá sem áhuga hafa á að fylgjast með, taka þátt í umræðum og miðla af reynslu sinni. Þannig skrái ég alla kennara skólans sem þess óska og hef raunar farið þess á leit við ýmsa reynda fjarkennara að láta þarna eftir atvikum eitthvað af hendi rakna í þágu náms og kennslu.
Mörg kerfi í KHÍ??August 15 2007
Töluverð umræða er jafnan um sundurleitan búnað í fjarkennsluháttum hér við skólann og þær raddir sterkar, sérstaklega meðal þeirra sem eru að hefja fjarnám, að það vanti meiri einsleitni í almenna tækniumgjörð námsins. Ég er sammála þessum viðhorfum að því leyti að ég tel að við eigum að temja okkur að nota einsleitar aðferðir eftir því [...]
Að blogga í þágu skólastarfsNovember 29 1999
Sjálfur er ég ekki áhugasamur bloggari, sérstaklega ekki um almenn dægurmál. Ég tel mig þó ekki hafa neina sérstaka fordóma gagnvart þessari vinsælu iðju fjölmargra Netnotenda. Helsta markmið mitt með því að setja þennan vef upp er einfaldlega að velta vöngum yfir því hvort vefumsjónarkerfi af þessu tagi gæti e.t.v. hentað, skjólstæðingum mínum, kennurum í Kennaraháskóla Íslands. [...]